Folaldakjöt er mjög gott kjöt, sem lýsir sér á milli villibráðar og nautakjöts, og mjög oft gott að nota uppskriftir fyrir slíkt kjöt þegar elda á folaldakjöt.
Sölueining er hálfur folaldaskrokkur, 20-25 kg úrbeinað.
Folaldið er afgreitt beinlaust, þá er það afhent ferskt (ekki frosið), aðeins grófflokkað í þunna poka til aðskilnaðar á hvaða hluti skrokksins er hvað, og þú þarft að klára að hluta það í sundur, vinna og pakka eins og þú vilt.
Mjög takmarkað magn í boði, og hægt að forpanta hér, en afhending verður í ágúst og nóvember.