Sumar og kjötsala

Sumar og kjötsala

Nú er búið að heyja fyrri slátt og langt komið að hirða rúllurnar heim. 

Sáðum smá byggi í vor, sem er, þrátt fyrir rosalega kaldan júní, aðeins byrjað að skríða. 

Kjötsala hefur gengið vel í sumar, og eru nú lambalæri sér uppseld, og lambaskrokkar bara til í þyngd 14-16 kg. 

Mjög takmarkað magn af lambahryggjum til sér, en frampartar til í einhverja stund í viðbót. 

Um að gera að tryggja sér kjöt. 

Áætlunin er að byrja að slátra 1.september, en það tekur um viku að fara að afhenda kjöt eftir það.