Sauðfjárslátrun að mestu lokin
Til að byrja með, þá þökkum við öllum þeim sem hafa þegar verslað hjá okkur í haust, kærlega fyrir viðskiptin og viðtökurnar á nýrri vefsíðu og vörum.
Við höfum lokið við sauðfjárslátrun - nema nokkur lömb sem heimtast seint, og náðum við að slátra 820 sauðfjár og geitum í allt, um 400 fyrir okkur á Refsstað - sem erum að selja ykkur hér í gegnum.
Við eigum 2 veturgamla skrokka til sölu - 20 kg og 26 kg, fyrstur pantar fyrstur fær, en svo eigum við ekki meira - svo um að gera að tryggja sér.
Þeir sem höfðu pantað folaldakjöt geta átt von á því núna á næstu 2 vikum, þar sem við lógum folöldum núna á fimmtudaginn og fimmtudaginn í næstu viku. Þau eru því miður uppseld, en minnum fólk á að vera fljótt að panta á næsta ári, þar sem við seljum alltaf upp fljótt.
Vambir eru uppseldar, sem og blóð, en í nokkra daga í viðbót er hægt að panta 5 slátur saman án blóðs, en einnig er hægt að hafa samband, ef áhugi er að kaupa lifur, mör eða eistu eða þindar sérstaklega, þar sem enn er eitthvað til af því.
Sviðin seldust á methraða í haust, en við eigum nokkur frá haustinu í fyrra, 2024, sem er ekkert að, en eru seld á 20% afslætti miðað við verðið á hinum. Mælum með að grípa sér, ef þú vilt eiga Vopnfirskt svið í vetur.
Lambakjötið okkar er svo alltaf á sínum stað, og til sölu í allan vetur og vonandi aðeins fram á sumar líka, þannig að hægt er að kaupa alltaf passlega í frystikistuna og bæta á þegar er búið. Erum að selja í heilum skrokkum, söguðum að vild viðskiptavinar, en einnig er hægt að kaupa slög sérstaklega, og framparta 5 saman, eða fleiri, grillsagaða eða sagaða í súpukjöt.