Sauðburði lokið og grillkjötið tilbúið
Sauðburður gekk að mestu vel, og lauk eiginlega á sléttum mánuði, með mest að gera 8.maí til 28.maí.
Erum farin að rækta gegn riðu, og vonumst til að hluti ásetningslamba í haust verði með eitthvað grænt (gott gegn riðu) gen.
Nú þegar vorverkin eru búin, en sumarið lætur eitthvað seint sjá sig hérna fyrir austan hjá okkur, þá er ráðrúm til að huga að sölu.
Viljum minna á að við seljum lambakjöt, sagað eftir þínum óskum, allt árið og eigum því kjöt núna í sumar, ef þig vantar læri, hryggi, sneiðar eða kótilettur eða frampartgrillsneiðar, eða hvað þig helst langar í. Seljum einungis heila skrokka í einu í bili, en sagað eftir óskum 2000 kr/kg. Hægt að fá kjötið vaccumpakkað og merkt ef óskað er eftir (200kr/kg í viðbót) og sent hvert á land sem er (300kr/kg í viðbót).
Seljum einnig framparta 5 saman, sagað í súpukjöt eða grillsneiðar.
Enn er til takmarkað magn af sviðum og sviðalöppum ef einhver vill bæta því við pöntunina. Sviðin fást á 10% afslættti ef keypt eru 10 eða fleiri hausar.
Framundan er heyskapur, girðingarvinna, skítmokstur og viðhald, þangað til að upp rennur lok ágúst og við förum að smala kindunum heim.