Lok sauðburðar
Núna þegar sauðburður er að líða undir lok og önnur vorverk fara á stjá, þá komumst við að því að okkur hefur gengið fram úr öllum vonum að selja það kjöt sem við áttum eftir haustið 2024. Við eigum því ekki til sölu lambakjöt í heilum skrokkum.
Til eru svið, og til er örlítið ærfille. Einnig erum við með til sölu lambaframparta og lambalæri, en lágmarkseining sem hægt er að kaupa er 15 kg, eða ss 5 stk lambalæri, eða 5 stk lambaframpartar eða blanda.
Hins vegar erum við stolt að koma út þessari vefsíðu og geta því sýnt betur hvað við höfum upp á bjóða, hvernig er hægt að njóta þess og hvaða vörur við stefnum á að hafa í haust, sem eru ss. uppseldar fram að nýrri sláturtíð.
Við stefnum að því að byrja að afhenda nýtt lambakjöt í haust strax í byrjun september.