Komandi sláturtíð 2025

Komandi sláturtíð 2025

Þá líður að hausti .... 

Við erum farin að skipuleggja haustið hjá okkur, og stefnt er að byrjun sláturtíðar 8.sept. Fyrsta afhending á kjöti afhent í sláturhúsinu ætti því að vera föstudagurinn 12.sept en fyrstu sendingar verða sendar með Flytjanda 16.september. 

Við munum bjóða upp á lambakjöt, eins og áður, pantað í heilum skrokkum eftir þyngdarflokki, og sögun, og hægt að fá annað hvort vaccumpakkað eða bara í stórum kassa, sem þarf þá að ganga frá sjálfur.

Verðið mun hækka um 5% samkvæmt verðlagi, en við viljum bjóða upp á forpöntun á fyrstu 80 heilum lambaskrokkum, á "gamla" verðinu, 1900 kr/kg. Eftir 80 skrokka, eða eftir að slátrun byrjar, hvort sem kemur á undan, verður grunnverðið 2000 kr/kg. Svo 200 kr/kg fyrir vaccumpakkað og 300 kr/kg fyrir flutning. 

Einnig erum við með forpöntun á folaldakjöti, en þar er takmarkað magn í boði. 

Til sölu er einnig 5 slátur saman (hjörtu, eistu, lifrar, þindar, mör, 5l blóð) á 4500 kr. 

Svið verða afgreidd jafnóðum í haust, á 1110 kr/kg. 

Hreinsaðar vambir eru á 1000 kr stk. 

Lágmarks afgreiðslueining þarf að vera 14 kg, til að sendingarkostnaður og annað borgi sig. Ef vilji er til að panta minna, þá þarf að hafa sérstaklega samband og borga flutningskostnað eftir verðskrá flutningsaðila.