Inn í veturinn - Matarmót Austurlands

Inn í veturinn - Matarmót Austurlands

Nú er sláturtíðin búin, og með henni, eru uppseldar helmingurinn af okkar vörum. Sviðin eru uppseld, slátur, ærhakkið og vambir. 

Við fórum á Matarmót Austurlands sem var mjög gaman, að hitta aðra austfiskra framleiðendur. 

Slátrun á árinu var 850 sauðfé, og 17 folöld, og sala hefur farið langt fram úr vonum. Þökkum kærlega öllum þeim sem hafa þegar verslað hjá okkur. Greinilegt að við þurfum að slátra fleiri ám í sláturhúsinu hjá okkur á næsta ári, miðað við söluna á ærhakki. 

Við viljum minna fólk á að við erum með frystigeymslur, svo við eigum von á að selja lambakjöt í allan vetur. 

Seljum lambaskrokka, sagaða og vaccumpakkaða eftir óskum. Einnig lambaframparta, 5 saman, um 15 kg, sagaða í súpukjöt eða grillsneiðar, eftir óskum. 

Slög er hægt að kaupa sérstaklega, en passa þarf að panta eitthvað annað með, ef flytja á slögin. 

Seljum einnig ærfille 

Svið frá okkur eru áfram í smásölu hjá Kauptúni, búðinni á Vopnafirði, og eins selja þau lambakjöt í smásölu og marinerað grillkjöt. Mælum með að skipta við þau þegar áhugi er að kaupa passlega í matinn. 

Við erum í öðrum haustverkum, rúningur búinn, búið að velja ásetning (erum aðeins að fjölga, til að framleiða meira af lambakjöti handa ykkur). Nú tekur við viðhald á húsum, en alltaf er verið að afgreiða kjöt 1-2 sinnum í viku líka, eftir pöntunum.