Fósturtalning og Kóngur og Drottning

Fósturtalning og Kóngur og Drottning

Rétt fyrir páskafrí, kom fósturtalningarmaðurinn Gunnar Björnsson og taldi fóstrin í öllum ánum. 

Það kom vel út og eigum við von á um 780 lömbum í maí. 

Eftir páska náðum við svo að hafa páskaslátrun - og slátruðum þar smálömbum og síðheimtungum sem voru orðin nægilega stór, og geldu ánum sem ekkert fannst í fósturtalningu. 

Með vordögum og hækkandi hitastigi er líka loks búið að klára að svíða þær sviðalappir sem voru eftir. Þær eru því til sölu, um að gera að panta sér slíkar, ásamt ærhakki, ærfille, eða lambakjöti.  

Við fósturtalningu kom í ljós að síðheimtingur frá öðrum bæ sem beið hérna í 1-2 daga, tók sér til og lembti 4 ær á meðan hann var á svæðinu - þær eru því að bera núna, tæpum mánuði fyrir venjulegan sauðburð. Í morgun fengum við því lambadrottningu og kóng þessa árs, gráa gimbur og grábotnóttann hrút. Þau dafna vel en sem komið er. 

Svo með hverfandi snjó fer hugur að vorverkum, hvort sem það er girðingavinna, setja upp fjárhúsið fyrir sauðburð, eða jarðvinna á túnunum. 

Minnum á að vefverslun okkar er alltaf opin, lambakjöt, sviðalappir, ærhakk og ærfille í boði eins og er. Mælum með að kaupa núna í apríl, þar sem afgreiðsla fer á bið yfir helsta sauðburð frá 7.maí og fram í júní.