Forpöntun haustins

Forpöntun haustins

Góðan daginn, kæru viðskiptavinir

Nú er heyskap lokið og heldur betur styttist í fyrsta sláturdag haustsins. 

Höfum uppfært verðskránna okkar, og eru ný verð á sviðum, slátri, vömbum og ærkjöti komið inn. 

Höfum ekki breytt flutningsverðinu, sem er 300 kr/kg hvert á land sem er með Flytjanda eða flugfrakt. 

Því miður getum við ekki boðið upp á pöntun á folaldakjöti haustsins í gegnum vefsíðuna hjá okkur, þar sem það er nú þegar uppselt í forpöntun. 

Hins vegar, ætlum við að bjóða upp á, líkt og í fyrra, að þeir sem forpanta lambakjöt fyrir 4.september, þeir geta fengið nýtt lamb haustsins 2026, á verði síðasta árs : 2000 kr/kg ópakkað, 2200 kr/kg vaccumpakkað. Forpantað lambakjöt verður afgreitt um 10.september. Í sömu pöntun er hægt að bæta við 5 slátur saman, sviðahausum, sviðalöppum, eða vömbum, athugið úrval aukavara í verslun á vefsíðunni.

Eftir 4.september tekur í gildi ný verðskrá á lambakjöti: 

2100 kr/kg ópakkað

2350 kr/kg vaccumpakkað