Folaldakjöt í haust
Nú höfum við bætt við möguleika á að forpanta folaldakjöt í haust, sem verður afgreitt í ágúst og nóvember. Þar sem það er takmarkað upplag, þá færðu tölvupóst innan 48 tíma frá pöntun með staðfestingu á þinni pöntun. Það getur komið til að þú lendir á biðlista, frekar en forpöntun.
Hægt er að fá folaldið afgreitt með beini, þá er það afhent ferskt (ekki frosið), og þú þarft að úrbeina það og vinna eins og þú vilt. 750 kr/kg.
Hægt er að fá folaldið afgreitt beinlaust, þá er það afhent ferskt (ekki frosið), aðeins grófflokkað í þunna poka til aðskilnaðar á hvaða hluti skrokksins er hvað, og þú þarft að klára að hluta það í sundur, vinna og pakka eins og þú vilt. 1600kr/kg.
Hægt er að fá folaldið afgreitt úrbeinað, fullfrágengið, hlutað sundur, fille, lund, steikur, gúllas og hakk sem pakkað er í lofttæmdar umbúðir og afhendist frosið. 2700 kr/kg.
Athugið að ekki er til folaldakjöt, heldur verður það afhent eftir folaldaslátrun í ágúst og nóvember. Hægt er að forpanta á "panta kjöt", þar eru 3 mismunandi vörur, eftir því hvernig þú vilt kjötið afhent.