Fengitíð og áfram gakk

Fengitíð og áfram gakk

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir viðskiptin á því gamla. Við hlökkum til að fara inn í þetta ár, af frekari metnaði og fara í að stilla smáatriðin í vinnslu og afgreiðslu betur. 

Fengitíðin fór í gang 16.desember hjá okkur, og ætluðum við að sæða í 2 daga, en annan daginn gleymdist sæðið á Reykjavíkurflugvelli og komst því ekki austur. Svona getur heppnin verið óútreiknanleg. En, við náðum að sæða 30 ær, og vonumst til að fá nokkra góða ásetninga úr því. 

Heimahrútarnir, bæði keyptir og heimaræktaðir, hafa svo séð um rest, og stefnum við á að hafa fleiri lömb til slátrunar næsta haust, og slátra fleirum hérna heima í Sláturhúsinu á Refsstað. 

En við erum samt ekkert farin fram úr okkur, við eigum enn kjöt frá því í haust, og hægt að kaupa lambakjöt í heilum skrokkum, sagað eftir standard sögunum okkar, eða að eigin vali, fyrir mismunandi gjald, vaccumpakkað eða ekki og sent hvert á land sem er (flutningur er á 300kr/kg hjá okkur enn sem komið er, lágmarkspöntun 15kg). 

Við stefnum að því að eiga lambakjöt eitthvað fram á sumar, en auðvitað veltur það eitthvað á hvað þið verðið dugleg að kaupa það sem eftir lifir vetrar. 

Einnig eigum við aðeins af ærfille, ærgúllas og lambaframparta sérstaklega sem hægt er að panta með lambakjöti.